25.5.2012 | 18:06
Fagna óvægnum fréttaflutningi.
OR kallar fréttaflutning af Hellisheiðavirkjun og óvæginn og gengur svo langt að harma hann.
Líklega er verið að snupra manninn sem fékk "nátturuverndardaginn" tilnefndan í afmælisgjöf, fyrir að sýna okkur með eigin augum hvað er um að ræða þarna í nágrenni við virkjunina. Auk þess varpar Ómar fram smellnum spurningum, sem OR reynir að víkja sér undan.
Gott fólk, hér í nágrenni við mig býr maður að nafni Ross Beaty, aðaleigandi Alterra (fyrrum Magma) sem er svo aðaleigandi HS Orku, sem er með framtíðaráform á línuritum sem stefna öll í norð-norð austur.
Árið 2016 ætlar hann að vera kominn í 600 MW framleiðslu, þegar Eldvörp og önnur áform á Reykjanesinu hafa verið virkjuð.
Ross opnar aldrei svo munninn öðruvísi en að dásama hvað jarðvarmaorka er tær óþrjótandi snilld og mikill 'cash-generator'. Þar er á ferðinni maður, sem OR og fleiri ættu að ásaka fyrir óvæginn og ósannan fréttaflutning.
Ég harma það að OR skuli kalla fréttaflutning um virkjun á þeirra vegum óvæginn, sem veldur fólki hugarangri af mörgum ástæðum; jarðskjálftar þegar vatni er þrýst niður aftur, mengun grunnvatns ef ekki verður hægt að þrýsta vatninu niður, stöðug og algjörlega órannsökuð brennisteinsmengun yfir stærsta þéttbýlissvæði landsins og síðast en ekki síst óafturkræfar náttúruskemmdir.
Opinber fyrirtæki og stjórnsýslan eiga ekki að harma fréttaflutning sem bendir á yfirvofandi hættur og skaða fyrir fólk og/eða skemmdir á náttúru. Opinber fyrirtæki og stjórnsýslan eiga að gæta hagsmuna almennings fyrst og fremst.
Það virðist gilda annað lögmál um fyrirtæki eins og Ross rekur, sem geta bullað út í eitt og harmað gagnrýni einstaklinga á borð við Björk og talið slíkt óvægið. Þeir eru líka bara að gæta eigin hagsmuna og haga sér eins og þeim sé skítsama um fólkið og náttúruna sem það lifir í.
|
Harma óvæginn fréttaflutning |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.5.2012 | 02:41
Kjarna verðbólga!
Sá í blaði að hækkun á olíu og benzíni hefði hækkað verðtryggð lán heimila um 15,5 milljarða á 15 mánaða tímabili til mars 2012. Nú berast fréttir af að olíuverð er loks að síga, en skv. lögmáli eyjunnar bláu, þá mun sú lækkun seint (eða aldrei) mælast til lækkunnar á verðtryggðum lánum heimilanna.
Kjarna verðbólga undanskilur tvennt; verðhækkanir á matvælum og orku (olíu, benzíni, gasi).
Ástæður fyrir því að undanskilja þessa tvo mikilvægu þætti í útreikningum á kjarna verðbólgu eru m.a. þær að hækkanir á þeim eru ekki háðar neinum venjulegum lögmálum. Verðsveiflur eru gífurlegar, stundum háðar "duttlungum" í framboðsstýringu OPEC ríkja, stríðsátökum og þvingunaraðgerðum.
Við útreikning á kjarnaverðbólgu eru þessar sveiflukenndu tegundur undanskildar vegna þess að markmiðið er að útreikningur endurspegli raunverulegar verðhækkanir, ekki verðsveiflur sem eru háðar skammtíma birgðaáföllum.
Hvers vegna er ekki fyrir löngu síðan búið að endurskoða þá þætti sem innihalda vísitöluna sem margfalda húsnæðislán á Íslandi? Hún er bæði ósanngjörn, röng og endurspeglar á engan hátt raunverulega verðhækkun. Þvert á móti; hún býr til taumlausa víxlverkun, sem leiðir til enn meiri verðhækkanna. Afleiðingin er sú að eignamyndun fólks er engin í 20 ár eða meir.
Í ýmsum samningum hér "westra", langtíma leigusamningum ofl. er heimilt að binda fast verð við vísitölu neyslu, en sú vísitala er "kjarnavísitala" hvorki meira né minna.
Er ekki kominn tími til að endurskilgreina þessa vísitölu á sanngjarnan og sjálfbæran hátt?
|
Olíuverð ekki lægra í hálft ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.5.2012 | 03:50
Hryssingslegt upphaf kosningabaráttu.
Er svoleiðis orðin dauðleið á þessum marklausu yfirlýsingum forsetans, kannski er ég hætt að skilja ástkæra ylhýra tungumálið!
"Ég mun hefja kosningabaráttu þegar frestur til að skila inn framboði er liðinn"
Lýgi, baráttan hófst í dag á mæðradaginn, gegn helsta keppinaut, konunni sem tók sér nokkra daga frí til að sinna móðurskyldu. Aðrir mótframbjóðendur, þ.m.t. Ástþór mærðir í hástert, engin ógnun að mati þjóðhöfðingjans.
"Þegar vonandi allt verður orðið stöðugra og kyrrð hefur færst yfir, bæði varðandi stjórnskipun og stöðu mála í landinu, þá hafi menn á því skilning að ég muni þá ekki sitja út allt næsta kjörtímabil og forsetakosningar fari þá fram fyrr en ella."
Lýgi, ég sagðist aldrei ætla að hætta á miðju kjörtímabili.
"Ákvörðun mín felur því ekki í sér kveðjustund heldur upphaf að
annarri vegferð, nýrri þjónustu við hugsjónir sem hafa löngum verið mér
leiðarljós; frjálsari til athafna en áður og ríkari af reynslunni sem
forsetaembættið færir hverjum þeim sem þjóðin kýs."
Lýgi, hann opnaði kosningaskrifstofu í dag til berjast um fimmta kjörtímabil sitt sem forseti.
"Siðareglur þekkjast ekki á meðal þjóðhöfðingja"! Úbbs, fáir þjóðhöfðingar hafa enda verið flengdir með þvílíkum siðvendi. Skýrsla RNA bls 170-179
Skora á forsetann að lesa siðareglur Fiskistofu, ítarlegustu siðareglur sem ég hef séð úr stjórnsýslunni, og heimfæra mætti helling upp á embættið hans.
Þeir sem skráðu siðareglur Fiskistofu, hafa algjörlega skilið tilgang þeirra; að tilgreina nánar atriði upp á embættið sjálft, þegar þessari "sjálfsögðu kurteisi" sleppir.
Þannig er starfsmönnum Fiskistofu óheimilt að þiggja "fisk í soðið" fyrir forsetann myndi þetta útfærast, óheimilt að þiggja fríar flugferðir, stofna "dinnerklúbb" með fálkaorðuþegum á Bessastöðum og tala, hrópa, klappa upp hvers konar fjármálabólur, enda séu þær til þess fallnar að springa.
Það er alveg rétt hjá forsetanum að siðareglur eru óþarfar fyrir langflesta! Þeir sem hafa gerst sekir um augljós brot, verða hins vegar að lúta því að það eru takmörk fyrir hrokanum!
Það ber samt að kætast yfir því að hið sanna eðli sem undir blossar braust fram í þessu viðtali. Þar talaði ekki föðurlegur forseti, með áhyggjur eða hugsjón fyrir þjóðarheildinni.
Nei þar talaði forseti, sem er löngu búinn að gefa embættinu allt sem hann á og gæti örugglega orðið farsæll fyrir land og þjóð á nýjum allt öðrum vettvangi " í annarri vegferð, nýrri þjónustu við hugsjónir sem hafa löngum verið [] leiðarljós; frjálsari til athafna en áður og ríkari af reynslunni sem forsetaembættið færir hverjum þeim sem þjóðin kýs"
Þjóðhöfðingi á að vera sameiningartákn, sem Ísland þarfnast gífurlega, það er eiginleiki sem ÓRG hefur glatað.
|
Forseti gagnrýnir fréttir RÚV |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.4.2012 | 02:03
Bjartsýnisbölmóður!
Með glaðhlakkalegu glotti fullyrðir forystusauður fyrrverandi bændaflokks, að tjón af völdum núverandi ríkisstjórnar sé orðið meira en tjón að völdum hrunsins.
Svona beinharðir 8-10 þúsund milljarðar, að ótöldum fórnarkostnaði .... virkilega?
Froðusnakkur með svona fullyrðingar fær enga vigt, þegar hann vill láta taka mark á sér.
Yrði skítfelldur á hæfis, hæfnis og grunnskólaprófi ef hann svo mikið sem setti þessar hugmyndir niður á blað. Fengi heldur ekki vinnu sem verðbréfamiðlari eða fóstra, því óheimilt er að sá ranghugmyndum í óvita.
Það eru gerðar ríkari kröfur í skólakerfinu en þetta, ekki satt? Hvað þá í atvinnulífinu,en hjá æðstu stofnun landsins með 10% traust, bara við hæfi ekki satt?
Að vanmeta vitsmuni kjósenda er hættuspil, en fyrir þennan meikar það ekki diff.
Vill hann láta taka mark á sér eða nægir bara að glotta?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.3.2012 | 03:43
"Láttu ekki svona drengur!"
Nú hefur eitt íslenskt endurskoðunarfyrirtæki , PwC verið sótt tvisvar til saka af slitastjórnum tveggja fallinna banka. Svo virðist sem hluti af ákærunni beinist að skilgreiningu á tengdum aðilum og broti á lánareglum til eigenda og tengdra aðila.
Fræg eru ummæli fv. Seðlabankastjóra þegar þv. forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði honum að Björgólfur og sonur hans Thor væru ekki tengdir aðilar. „Þú talar ekki svona við mig drengur!“ sagði hann og byrsti sig, nema von! Hversu langt er hægt að flækja sig inn í „flottum skilgreiningum“ en missa síðan sjónar á því augljósa. Slitastjórn Glitnis reynir að sýna fram á skuggastjórn og tengingu annarra aðila, hjóna, sem hrifsuðu titilinn „brúðkaup aldarinnar“ og öldin rétt nýbyrjuð.
Lítið sem eiginlega ekkert hefur heyrst í endurskoðendum almennt, í kjölfar hrunsins. Þeir, eins og allir aðrir bera af sér sakir, benda á einhvern annan, og bæta því við hróðugir; að þeir hafi í einu og öllu farið eftir Alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum og reglum. Íslenskir endurskoðendur, hafandi farið í einu og öllu eftir þessum stöðlum, gætu varpað mikilvægu ljósi á hvar staðallinn klikkaði. Enron var býsna stórt áfall fyrir stéttina, en uppgjörið við íslenska bankahrunið af þeirra hálfu er óklárað og komið á gjalddaga.
Hvar er opinskáa og heiðarlega umræðan um ISA 240 alþjóða staðalinn, sem samþykktur var beinlínis til höfuðs stjórnendum sem manipúlera fjárhagsreikninga fyrirtækja?
Á árinu 2004 var þessi alþjóðlegi endurskoðunarstaðall samþykktur, sem tekur sérstaklega til fjársvika og fölsun ársreikninga. Þessi staðall var svar stéttarinnar við Enron málinu, en sem kunnugt er tók ein af stóru endurskoðunarskrifstofa heims Arthur Andersen fullan og einbeittan þátt í svikunum sem þar áttu sér stað.
Markmiðið með staðlinum felst aðallega í grundvallar hugarfarsbreytingu endurskoðandans, þannig að hann megi ekki gera ráð fyrir (treysta því) að stjórnendur fyrirtækja segi satt og rétt og frá , enda þótt hann hafi aldrei haft ástæðu til að véfengja þá áður. Grundvallarbreyting frá því sem áður var og endurskoðendur máttu vera í góðri trú um heilindi stjórnenda.
Þess er krafist að endurskoðendur beiti faglegri tortryggni (e: professional scepticism) í gegnum allt endurskoðunarferlið, og geri ráð fyrir möguleika á sviksamlegum rangfærslum í bókhaldi, sem gefi ranga mynd af stöðu fyrirtækisins.
Staðallinn skilgreinir tvenns konar einkenni fjársvika:
Rangfærslur í fjárhagsbókhaldi geta annað hvort stafað af svikum eða villum. Munurinn þar á milli ræðst af því hvort ásetningur liggi fyrir.
1. Rangfærslur á fjárhagsupplýsingum (dæmi : uppsprengt verð eigna – rangar tekjufærslur – eignfærsla rekstrarkostnaðar o.þ.h.)
2. Misnotkun eigna (dæmi: þjófnaður á eignum fyrirtækisins peningar – eignir, persónulegur kostnaður greiddur af fyrirtæki, ólögleg lán til eigenda o.þ.h.)
Megin ábyrgð til að fyrirbyggja slík svik, hvílir á stjórn og stjórnendum fyrirtækisins .
Vandamálið er hins vegar að í 89% tilvika eru svikararnir einmitt æðstu stjórnendur og/eða stjórn fyrirtækisins.
Ábyrgð endurskoðendans er: Að afla nægjanlegrar staðfestingar á að í fjárhagsreikningi séu ekki að finna rangfærslur af völdum svika eða villna, sem hafa efnisleg áhrif á niðurstöðu reikningsins og blekkja þannig væntanlega og núverandi fjárfesta.
Staðallinn er upp á tugir blaðsíðna þar sem farið er yfir margvísleg tilvik og viðeigandi viðbrögð við þeim. Það er sérstaklega tekið fram að endurskoðandi geti ekki borið ábyrgð á sérlega tæknilegum og einbeittum svikum, þar sem stjórnendur jafnvel taki höndum saman til þess að leyna endurskoðenda ákveðnum viðskiptafærslum. Við mat á áhættu um rangfærslur í ársreikningi , þarf endurskoðandinn að framkvæma ákveðnar æfingar til að réttlæta mat sitt.
Auk þess verður að líta á hlut eða hlutleysi endurskoðenda í bankahruninu sérlega alvarlegum augum, með tilliti til mikilvægi starfseminnar fyrir efnahagskerfi þjóðar.
Það hlýtur að þurfa alþjóðlegan sérfræðing til að leggja mat á meinta vanrækslu endurskoðenda, annað er óhæfa.
|
PwC hafnar málatilbúnaði bankana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2012 | 02:00
Léttúðug lygi!
Undanfarnar vikur, mánuði og ár hefur sú leiða staðreynd afhjúpast að lygin er léttvæg fundin á Íslandi.
Mörgum finnst að sumir einstaklingar og sumar stéttir verði að vera hafnar yfir alla lygi, léttúðuga eða þungbúna, hvíta eða kolsvarta.
Augljósustu einstaklingarnir eru auðvitað prestarnir sem boða frelsi, fögnuð og boðorðin tíu, en tvö af þeim eru auðskildust af þeim öllum;
Þú skalt ekki stela og þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
Samt gera þeir hvorutveggja eins og dæmin margsanna.
Aðrir, "yfirlygihafnir" einstaklingar eru auðvitað háttvirtir alþingismenn, forsetinn, dómarar, lögfræðingar, læknar, bankastjórar og allar aðrar "fag" stéttir (eins skrumskælt eins og það (fag)orð nú er)
Þeir sem lifðu og hrærðust í miðju blöðrusprengdu hagkerfinu, vissu hins vegar að um götur og torg gekk fólk í eigin nafni, í nafni stofnana, fyrirtækja og já heilla stétta, um sí-ljúgandi. Það var eins og væri keppni í gangi hvort viðkomandi lýgur meir en hann mígur, eins konar lygara-pissukeppni.
Ein krafan sem sett var fram af fólkinu eftir hrun var skýr: Hættið að ljúga, sannleikann upp á borðið.
Ég er líka handviss um að flestir foreldrar eru mér sammála um að sannsögli er hæst metin og yfirvegur ótrúlegustu prakkarastrik þegar kemur að því að vega og meta afleiðingar og ákveða uppbyggjandi "refsiramma" í uppeldinu.
Þess vegna er það gjörsamlega óþolandi að horfa uppá lygara labba inn og út úr þessu virðulega Þjóðmenningarhúsi, ljúgandi upp í saksóknara, dómara og blaða og fréttamenn eins og enginn sé morgundagurinn, og enginn hafi verið gærdagurinn.
Hvort er Ingibjörg Sólrún eða Össur að ljúga? Hvort er Ingibjörg eða Davíð að ljúga? Hvor lýgur hraðar Hreiðar, Sigurður, Sigurjón, Lárus eða Halldór(á bak við bilað símtól)
Síðan eru smátt og smátt að "leka" fréttir af rannsókninni í kringum Fjármálaeftirlitið, forstjórann, lektora, stjórnmálamenn og litla bankamenn. Þessum frásögnum ber ekki saman, enn og aftur lýgur einhver blákalt í einhverju skjóli sem þarf að uppræta.
Þjóðfélag sem byggist upp á lygi og spillingu þeirra sem helst eiga að sýna gott fordæmi, er dæmt til að hrynja. Tékk!
Þegar maður heyrir orðið "sannleiksnefnd" hríslast um mann léttur hrollur.
Faglygarar eru löngu búnir að missa sjónar á sannleikanum.
Uppbygging nýs þjóðfélags getur aldrei byggst á sömu lyginni aftur og aftur.
Refsiramminn og dómharkan í þjóðfélaginu tekur mið af sannsögli og trúverðugleika viðkomandi. Af því að dæma er trúverðugleikinn enn þá enginn.
Þá, sem hins vegar sannast upp á sannsögli, eru umsvifalaust færðir í drengskapar- og merkismannatölu og skiptir þá afar litlu máli hvort sannsöglið kunni að veikja málstað hins sama til skemmri tíma litið.
Aðalatriðið er: EKKI LJÚGA AÐ MÉR!
|
Sigurður vann drengskaparheit |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.3.2012 | 18:31
Verður framtíðarsöngur 2016 ; "Af hverju varaði enginn við?"
Eignabóla - verðbólga - hrun!
Stórir gjalddagar næstu 4 ár í erlendri mynt, innstreymi gjaldeyris mun ekki standa undir greiðslum.
Uppgjör við kröfuhafa slitastjórna - heldur áfram að veikja gengi ÍSK.
Flaggskip íslenskra fyrirtækja, búa sig undir brottför af íslenska myntsvæðinu
Biðin eftir Evru - verður of löng og mörkuð blóðugum átökum.
Framtíðin með íslensku krónunni er ekki björt.
Þeir sem helst hafa sig í frammi og telja að krónan sé fín sjá ekki lengra en til mánaðarmóta, kannski líka þeir, sem "vinna frítt" (sic) fyrir íslenska Ríkið, af því að gullfallhlífin (eftirlaunin) er vel pökkuð í bakpokanum af þeim sjálfum.
Þá eru enn aðrir sem telja að pessimistar hljóti að stýrast af annarlegum hvötum, svo þegar skellurinn kemur, er gargað með frekjulegum tón; Af hverju varaði enginn við?
Kannski er okkur ekki viðbjargandi!
Við dræpumst trúlega frekar úr þorsta í hávaðariflildi við vatnsberann, en að þiggja sopa úr ausunni hans.
Eignasvipting og upptaka á sparnaði almennings á Íslandi yrði skilgreint sem stjórnarskrár- og mannréttindabrot í mörgum löndum. Á Íslandi kærir dæmdur innherjasvikari mál sitt til mannréttindadómstóls, en almenningur drúpir höfði og kyngir.
|
Þurfum alþjóðlega peningastefnu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.2.2012 | 15:04
Hættið þá að klappa manninn upp!
Lýst er eftir forseta! Týndist inn í sjálfum sér, sást síðast í yljarnar á honum á leiðinni inn í naflann á sjálfum sér.
Heldur reglulega funda-at á heimili sínu til þess að næra sjálfsgleði sína, þess á milli er fáninn á Bessastöðum geymdur í eldhússkúffu, af því húsbóndinn er að heiman.
Að öðru leyti er ég innilega sammála þessari lýsingu fyrrv. ritstjóra MBL, sem hefði mátt draga fleiri sviðsmenn á þjóðarsviðinu inn í umræðuna líka. Menn og konur sem koma og neita að fara!
Afleiðingin er sú að myndast hefur alvarlegt skarð í raðir framtíðar leiðtoga, hafa horfið til annarra verka.
Gaman væri samt að fá nánari skýringu Hannesar Hólmsteins þegar hann var á beinni línu DV og sagðist telja að forsetinn væri ekki "góðgjarn".
|
Forsetinn að týnast í sjálfum sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.2.2012 | 06:45
Á Á álitsgerðin!
Stundum er hollt að reyna setja sig í spor aðila, sem eru að fjalla um mál frá báðum hliðum þess.
Það er bara sanngjarnt, enda geta opnast augu fyrir tilvikum sem ekki sáust fyrir vegna blindni fyrir eigin málstað.
Nú hefur þessi álitsgerð verið lesin í þaula.
Fetað í skótau stjórnar FME, sem ákvað að reka forstjóra FME á grundvelli hennar.
Stutta svarið/ niðurstaðan úr álitsgerðinni úr tveimur spurningum sem lagt var upp með:
1. Er ástæða til að draga í efa niðurstöðu Andra Árnasonar hrl. um hæfi Gunnars Þ. Andersen til að gegna skyldum sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins á grundvelli þessara gagna?
Svar: Á og Á. Nei
2. Er ástæða til að ætla að sú staðreynd að Gunnar Þ. Andersen gegnir starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins skaði málatilbúnað vegna mála sem eftirlitið vísar til sérstaks saksóknara eða ríkislögreglustjóra?
Svar; Á og Á : Afdráttarlaust Nei.
Þá hlýtur boltinn að vera hjá stjórn FME; sem tekur þessa fordæmalausu, og jafnvel skaðabótaskyldu ákvörðun að víkja forstjóra FME úr starfi.
Svörin verða vonandi stutt líka! Það hentar vel fyrir "stuttan" sprengiþráð!
|
Gunnar Þ. Andersen mætir til vinnu í dag þrátt fyrir uppsögn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.2.2012 | 06:17
Ber að kætast eða leiðast?
Aldeilis óforbetranleg skrumskæling á "markaðsöflum" á sér stað á íslenska fasteignamarkaðnum.
Hækkun á leigumarkaði stafar líklega af skorti á framboði.
Framboðið af húsnæði var skilgreint "ofsa" eða "of" framboð fyrir örfáum misserum.
Þá var farið í "meinta" markaðsmisnotkun, og framboði miðstýrt af þolinmóðum, en bálreiðum fjármagnseigendum.
Hluti plottsins gekk út á að vísa leiguliðum af "villu" vegar.
Allir alvöru Íslendingar eiga að búa í "eigin" húsnæði er mantran sí og æ, æ og sí.
Þessi "umskipti" á fasteignamarkaði hljómar eins og gleðifrétt ...... en er hún það?
|
Íbúðaverðið á uppleið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)




iaprag
svarthamar
vala
jenfo
finni
huxa
astromix
draumur
disdis
larahanna
fhg
svanurg
jaherna
brjann
hildurhelgas
lehamzdr
ragnar73
sissupals
gattin
isspiss
gudr
pallvil
ingibjhin
gudjul
olinathorv
skulablogg
stinajohanns
loftslag
adriana
ak72
malacai
arikuld
beggo3
normal
fridaeyland
gerdurpalma112
zeriaph
snjolfur
hordurvald
kreppan
johanneliasson
kamasutra
ludvikjuliusson
oliskula
pallblondal
rafng
logos
sigurfang
sij
siggith
stjornlagathing
sattekkisatt
valdimarjohannesson
tsiglaugsson
valli57
icekeiko
iceberg
