31.12.2009 | 12:20
Á meðan lífsandinn höktir í nösunum á mér ......
mun ég berjast fyrir þetta land.
Þetta sagði Steingrímur J í gærkvöldi, en fyrr um kvöldið hafði hann haldið mikla þrumuræðu, þrungin af sannfæringu um að lúkning Icesafe málsins yrði á þann veg sem hann óskar.
Það var auðvelt að hrífast af einlægni, með þessum yfirslökkviliðsstjóra víkingabrennunnar miklu.
Ekki eitt augnablik, velkist ég í vafa um heilindi hans í þessum orðum.
Fólkið sem byggir þetta land, þarf líka að hafa sömu sannfæringu og Steingrímur. Það er alls ekki svo.
Ef sannfæring væri fyrir því að samningarmenn Íslands í Icesafe málinu, hefðu barist með þessum hætti, gegn vafasamri skuldbindingu saklausra borgara, þá ríkti líklega meiri sátt.
|
Forseti tekur sér frest |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



iaprag
svarthamar
vala
jenfo
finni
huxa
astromix
draumur
disdis
larahanna
fhg
svanurg
jaherna
brjann
hildurhelgas
lehamzdr
ragnar73
sissupals
gattin
isspiss
gudr
pallvil
ingibjhin
gudjul
olinathorv
skulablogg
stinajohanns
loftslag
adriana
ak72
malacai
arikuld
beggo3
normal
fridaeyland
gerdurpalma112
zeriaph
snjolfur
hordurvald
kreppan
johanneliasson
kamasutra
ludvikjuliusson
oliskula
pallblondal
rafng
logos
sigurfang
sij
siggith
stjornlagathing
sattekkisatt
valdimarjohannesson
tsiglaugsson
valli57
icekeiko
iceberg

Athugasemdir
Ég gæti ekki orðað þetta betur Jenný.
hilmar jónsson, 31.12.2009 kl. 12:25
Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG. Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur. Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig. Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur. Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga. Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist. Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar.
Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár. Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli. Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum. Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni. Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:33
Er Jakob Þór þessi sami maður og alltaf er að bjóða oss VinstriGrænum að taka þátt í uppákomum sínum. Aumingja- og tilfinningarök eiga ekki við í þessu máli. Þjóðin á að axla ábyrgð á gerðum sínum undanfarin ár. Kaus þetta frjálshyggjurugl yfir sig. Hvar er siðferðið? Fellt það í að hlaupast undan ábyrgð á gerðum sínum? Það er helst að sjá að svo sé í þessu tilfelli: Við borgum ekki!
Lifi byltingin! Rauð og blóðug!
Auðun Gíslason, 31.12.2009 kl. 12:47
Auðun er klassískur íslenskur landráðamaður...Ísland þarf ekki á svona fólki að halda. Úr landinu með það allt saman ásamt öðru skítapakki...
Óskar Arnórsson, 31.12.2009 kl. 13:10
Tek heilshugar undir orð Steingríms,nú brettum við upp ermum og tökum slaginn,,vona að nýja árið færi okkur jöfnuð og frið í þessu litla samfélagi sem við búum í og verum á varðbergi fyrir þeim sem vilja sífalt vera að arðræna samborgara sína,lifið heil.....
Res (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 13:21
Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.12.2009 kl. 14:01
Kæru innlitarar og ágætu bloggarar! Óska ykkur gleðilegs árs og friðar, með kærri þökk fyrir frábæra viðkynningu og upplífgandi umræður á þessu umbrotsári sem nú er að líða.
Stígum fastar á fjöl, spörum ei vorn skó. Guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól.
Stöndum saman um grunngildin; virðingu, trúnað og heilindi.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 31.12.2009 kl. 16:37
Óskar! Landráðamaður hvað???
Auðun Gíslason, 31.12.2009 kl. 19:43
Gleðilegt ár.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.1.2010 kl. 02:52
þú ert landráðamaður Auðun! Er það eitthvað flókið?
Óskar Arnórsson, 1.1.2010 kl. 03:30
Steingrímur er einn af bestu sonum Íslands, engum manni treysti ég betur en honum. En það er tvífari hans, sá sem studdi frjálsa framsalið, eftirlaunalögin og skipaði vin sinn yfirsamningarnefndarmann, með umboð til að fela gögn fyrir ríkisstjórninni, sem ég hef vara á.
Nú hefur herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýðveldisins það í hendi sér að forða þjóðinni frá niðurlægingu, afsali auðlinda, fátækt og sundrungu.
Um leið og ég þakka góða bloggvináttu óska ég þér "jóla árs og frygðar" (gömul kveðja þ.e. ósk um gott ár og velgengni og frjósemi niðjanna, svo sem litlu nöfnu, sem ég vona að dafni vel)
Sigurður Þórðarson, 1.1.2010 kl. 10:29
Það getur vel verið að Steingrímur meini það sem hann segir. En ég er alls ekki viss um að hér hafi verið samið á þann besta hátta fyrir Ísland eins og þau vilja vera láta. Þess vegna vil ég berjast fyrir því að Ícesave verði ekki samþykkt í núverandi mynd. Ég er sannfærð um að þar hefur spillt fyrir mikil löngun Samfylkingar til að ganga inn í ESB. Ég tek þó undir með þér Jenný mín, við viljum örugglega allt það besta fyrir land og þjóð. Okkur greinir bara á um hvað sé best. Gleðilegt nýtt ár og megi gæfan brosa við okkur öllum á nýju ári.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.1.2010 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.