14.2.2010 | 21:02
Dómsdags yfirskrift er þetta á viðskiptaþingi!
Að sjálfsögðu er framtíð fyrir íslenskt viðskiptalíf!
Með virðingu, trúnað og heilindi að leiðarljósi, er framtíðin björt.
Viðskipti snúast um að báðir aðilar hagnist, ekki bara einn.
Samkeppnisyfirburðir snúast um raunverulega yfirburði, ekki yfirburði með svikum og prettum.
Viðskipti snúast um ábyrgð í víðu samhengi.
Þannig færi vel á því að allir aðilar, hugsi rétt sem snöggvast áður en taumlaus græðgi og óbilandi sjálfstraust nær völdum: "Hvað myndi gerast ef allir breyttu eins og ég?"
Það tók nógu marga til að falla í taumleysið, með þeim afleiðingum að heilt efnahagskerfi hrundi!
Þeirri staðreynd má aldrei gleyma.
Er framtíð fyrir íslenskt viðskiptalíf? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 14.3.2010 kl. 06:19 | Facebook
Athugasemdir
Heyr, heyr
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.2.2010 kl. 21:54
Þú kannt þinn Kant, Jenný Stef.
Páll Vilhjálmsson, 14.2.2010 kl. 22:30
Já Páll sæll, ekki amarlegt að eiga slíkan leiðtoga í lífsins ólgu viðskiptum
.... og mættu fleiri taka heimspeki Immanúels Kant um siðferði til fyrirmyndar.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 15.2.2010 kl. 01:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.