Hugmyndafæð, depurð og tepruskapur í fjáröflun Ríkis og sveitafélaga!

Svo lengi sem ég man, hafa kröfur um nýjar hugmyndir í fjáröflun verið  háværar en jafnskjótt og  nýrri og frjórri hugmynd er varpað fram, rísa upp háar mótmælaöldur, sem ná að því er virðist að kæfa alla nýsköpun í fjáröflum Ríkis og sveitarfélaga í fæðingu.    Þessi mótmæli má jafnvel líkja við tepruskap eða tóma vitleysu, a.m.k. eftir á að hyggja. 

Á ferðalagi mínu um Thailand á dögunum, vakti það óskipta athygli mína að heyra að aðeins 2 milljónir manna greiddu skatta, af 64 milljóna mannfjölda.  „Hvernig fjármagnar Ríkið þá verkefnin og  hmhm herkostnaðinn við konungsríkið“? spurði ég.  „Ríkið rekur lottó, og allir spila í lottói, það er svona partur af karmatrúnni að  ríkidæmi og góðir hlutir gerist hjá „góðu“ fólki “.  Skattsvik og spilling er sjálfsagður hluti af tilveru fólksins.

Þó ég sé sjálf haldin innbyggðu ofnæmi  fyrir happdrætti  og lottói, (leiddist að eyða vonarvinningum í huganum) þá er ég alls ekki á móti fyrirbærinu, enda upplifa margir spennu og stundargleði í kringum lottó og þeir fiska sem róa.  Ég hef hins vegar stundum gaman að spila póker fyrir hundraðkalla, þó með því skilyrði að viðspilendur séu alvöru fólk, með bakgrunn, sögu og slatta af húmor. 

Þess vegna skil ég ekki af hverju hugmynd um Ríkisrekið fjárhættuspil sé ekki komin á framkvæmdastig.  Þannig gætu Ríki og/eða sveitarfélög  slegið nokkrar flugur í einu höggi;

  •          Ólögleg starfsemi, upp á yfirborðið – skattskyld  með leyfisgjöldum og ágóðahlut
  •          Nýbreytni  í skemmtanaiðnaði og veitingarekstri
  •         Styrkir ferðamannaiðnað
  •         Nýr skattstofn
  •          Atvinnuskapandi  - margföldunaráhrif
  •          Auðgar mannflóruna
  •          Spilafíkn – eiturlyfjafíkn og  áfengisfíkn eru til staðar þrátt fyrir boð og bönn

 

 casino-gambling.jpg

Hægan, hægan

áður en ofsinn blindar sýn yfir þessum frökku skoðunum, ófyrirleitni og skorti á meðaumkun með þolendum spilafíknar, þá .........  spratt þessi pistill upp í hugann við að lesa grein í Vancouver Sun  (sjá link) í morgun um áætlanir fylkisins að nýju Casinói í hjarta borgarinnar í endurbyggðri  bc-place-coming-2011.jpgíþrótta/samkomu/hljómleikahöll (einskonar Hörpu) þar sem opnunar og lokaathöfn vetrarólympíuleikanna voru haldnar fyrir ári síðan, og ósjálfrátt bar ég þessar áætlanir saman við væntanlegan „skrefatunnuskatt“ Jóns frænda.

Auðvitað eru til spilafíklar hér í þessari borg eins og annars staðar, en langsamlega langflestir „ know their limit and play within it“.  Auk þess rekur fylkið öflug varnarverkefni til aðstoðar spilafíklum.  Stjórnvöld settust einfaldlega niður og  horfuðst í augu við að án þátttöku í þessari „grein“ færu (skatt)tekjur fljúgandi til annarra fylkja eða landa í gegnum netheima.

Það er gaman að geta þess að fylkislottóið BCLC notar íslenskan hugbúnað frá Betware.

Fjárhættuspil tengist oft undirheimastarfsemi, peningaþvætti og glæpastarfsemi. 

Langflestum stjórnvöldum finnst eðlilegra að draga starfsemina upp á yfirborðið og berjast gegn glæpum þar, frekar en í dimmum undirheimum.

Punkturinn er þessi;  það þarf meiri fjölbreytni í peningaöflun hjá Ríkinu, og hún þarf ekki alltaf að felast í grautfúlri skattheimtu sem gefur ekkert sýnilegt í aðra hönd, nema vonbrigði og vonsku eða niðurskurði á grundvallarréttindum framtíðar skattgreiðenda og íbúa þjóðfélagsins. 

 


mbl.is Fækka í yfirstjórn borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála þér.

Á sama hátt mætti koma upp dópsölu ríkisins

Hóruhúsi ríkisins

osfv. 

þá kæmist skattmann virkilega í feitt og þetta færi allt úr undirheimunum.

Emil Emilsson (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband