SÁáskorun

Kannski verður hinn nýskipaði stjórnarformaður SÁÁ, kveikja að "áskorunarpistlum", þessi er númer tvö í röðinni.

Held að þetta hafist nú ekki með tómum töffaraskap, kæri formaður.  Pistillinn ruggaði bátnum en skvetturnar urðu að háum öldum.    " Fræðingar eru fífl" umræðan virkar ekkert voðalega vel í vísindum. 

Skora á þig að tækla þetta mál, án þess að blanda geimverum í umræðuna.  

Geðlæknirinn, sem verið hefur í fréttum þarf að fá svigrúm til að útskýra sína hlið.  Nú er hann hrokkinn í sama ruglgírinn og GSE, og  telur það fyrir neðan sína virðingu (sic) að lesa pistil eftir stjórnarformann SÁÁ.

Gott og vel, ef þið haldið að þið tæklið dópvanda á Íslandi svona,  þá er okkur kannski ekki viðbjargandi hvort sem er!  Gersamlega týpískt að setja hausinn niður og hornin út og "keyra" einbíla á tveimur dekkjum á eitt meint naut! 

Þessi aðferð kann að vera nauðsynleg síðar, þegar nýi formaðurinn hefur flutt inn og tekið smá kynningarkúrs á fleiri hliðum mála, rabbað við Þórarinn og svona  og sýnt er og sannað að fyrirstaða í nafni "vísinda" þarf að brjóta með óhefðbundnum hætti.

Plís, bara ekki klúðra þessu tækifæri og þessum meðbyr!


mbl.is Rökin minna á sannanir fyrir geimverum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjá hversu illan enda, ódyggð og svikin fá!

Óseðjandi verslunarhungur kallaði meistari Þórbergur það þegar þau hjónin brugðu sér í skemmtisiglingu með  rússnesku skipi Baltika og rúmlega 400 Íslendingum fyrir tæpum 45 árum síðan.

Frásagnir af þessari "svallför" eru óborganlegar, en jafnframt mikilvæg söguheimild, sem staðfestir grun margra að ekki hafi kaupgleði og skemmtanaofsi hafist beinlínis upp úr aldamótunum 2000.

Þórbergur skýrir frá því að verslunarhungur Íslendinganna hafi verið óseðjandi, svo að það hafi helst líkst móðuharðindahungrinu í gamla daga.  Meðal annars hafi verið rifinn út í Egyptalandi mikill fjöldi af loðnum úlföldum eða eftirlíkingum af úlföldum, sem skipstjórinn hafi mælst til að geymdur yrði á einum stað upp á hádekki vegna óþrifnaðar, sem kynni af þessu að stafa.  Síðan hafi komið boð frá Íslandi, að öllu þessu skyldi hent fyrir borð og útförin hafi farið fram að viðstöddum mörgum vonsviknum Íslendingum.  "Athöfnin tók nokkurn tíma" segir Þórbergur. 

"Ég vildi láta syngja sálm: Sjá hversu illan enda, ódyggð og svikin fá!  ... en lagði samt ekkert kapp á það"

Um siðgæðið að öðru leyti um borð í Baltika segir Þórbergur:  "  Barinn var oftast nær fullur af fólki, því eitthvað varð það að gera sér til afþreyingar.  Ég fór stundum á barinn eins og aðrir.  Ég fann nokkra daga samtals svolítið á mér.  Og á yndislegasta degi reisunnar var ég fullur í tíu mínútur.  Tilburðir í ástarlífi voru þarna dálitlir, en fæstir náðu endanlegu takmarki, því afkimar voru þarna fáir og ótryggir.  Það hafa þá helst verið björgunarbátarnir uppi á háþilförunum"

Þessa frásögn og fleiri má finna inn á Tímarit.is og Öldinni okkar 1966.

Nú verða kvikmyndagerðamenn að hafa hraðann á og þrykkja upp handriti af einhverju sem líklega gæti orðið geggjuð gamanmynd,  á meðan fólkið í myndinni má ennþá "reykja" og "svalla" fyrir opnum tjöldum.

20 árum síðar var svallskipið næturstaður Gorbachevs á leiðtogafundi í Reykjavík.


mbl.is Skuldum 14.272 milljarða í útlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun!

Skora hér með á Gunnar Smára Egilsson, að láta það verða sitt fyrsta verk að kalla saman fund með persónuvernd, tölvufræðingum og öðru góðu fólki, með það að markmiði að loka fyrir hraðskrift á læknadópi sem gengur kaupum og sölum á götunni, drepur börnin okkar og skapar óbærilega sorg og hörmung á heimilum landsmanna.

Það er hægt að fullnægja kröfum um persónuvernd með dulkóðun ef vilji er fyrir hendi.

Auk þess er um stórfellt efnahagsbrot að ræða, sem grefur undan "heilbrigðu" heilbrigðiskerfi.

Aðgerðir landlæknis s.l. 40 ár eru fullreyndar og ónothæfar.  Embættið er fallið á prófinu og það er áhyggjuefni!

Það kann að skapast nýr jarðvegur til sóknar að nýkjörinn formaður SÁÁ er ekki læknir, með fullri virðingu fyrir fráfarandi formanni, sem hefur unnið kraftaverk á ákveðnum hópi.

 

 


mbl.is Gunnar Smári kosinn formaður SÁÁ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef aska leyfir

verð ég komin "heim" að viku liðinni til rúmlega júní dvalar.

Þegar ég horfði á RUV og  bóndann gráta fé sitt, í öskustormi úti fyrir, krepptust allir vöðvar af einlægri hluttekningu og meðaumkun.

Það  fer að flæða út um öll vit,  hvað ein þjóð þarf að þola af náttúrunnar og örfárra manna hendi.

Þessi óværa herðir oss ef til vill, en vonandi ekki of mikið.    Þannig harka er í offramboði nú þegar, og verðfellur brátt.

Það er a.m.k. þrennt sem þessi þjóð gæti verið sammála um að vera, gera og vilja;

1.  Bera sig með reisn gagnvart náttúruöflum.

2.  Berjast gegn dópvanda ungs fólks með kjafti, klóm og höfði.

3.  Elska sitt land 

 

Unga fólkið hamingja og menntun þeirra er það sem framtíð Íslands byggir á, það er enginn "frasi"  það er áskorun og próf, sem við höfum fallið á s.l. mörg ár.  

Við getum ekki bara ýtt ábyrgðinni á stjórnvöld og úrræðin sem ekki duga.  Vandinn byrjar heimafyrir af því að þjóðfélagið og stjórnvöld erum við, svo einfalt er það.  Þetta er sameiginlegt vandamál sem við sameinuð verðum að leysa.  Enginn er hólpinn þegar grannt er skoðað.

Safna sólskini og hlýju  í skjóðu, sem ég hleypi úr þegar til Íslands er komið. Smile

 


mbl.is Útlitið gott fyrir flug til morguns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liðið!

Borist hefur myndbréf af Staksteinum dagsins og er ljóst af þeim lestri að þeir telja út í hött að brúka handjárn við handtökur,  svo fremi að viðkomandi hafi ekki "nýlega skotið á fjöldasamkomu með hríðskotabyssu"(sic)  Vandlætingin frussast um alla steinahrúguna og er beint í áttina til "liðsins" í bloggheimum sem vilja leyfa "þernunni" að njóta vafans í meintri árás.

Ennfremur stikla steinarnir; 

dsk.jpg

"Jafnvel þótt í ljós komi að AGSforstjórinn
eigi enga samúð
inni, þá er samt hægt að horfa
með samúð til hans og allra annarra
sem þurfa að sæta bandarísku
refsiréttarfari."

 

 

Puff! gott fyrir "klanið" að vita að þau hefðu átt samúð Staksteina"liðsins" trygga ef dómarinn í New York hefði tekið upp málið þar, ekki satt?

Ef þessi AGS forstjóri á inni samúð vegna þess að ásakanir eru rangar, þá á hann inni samúð annars ekki.

Staksteinar nefna svo til sögunnar Madoff nokkurn sem "viðurkenndi" (nýtt orð í fjárglæpum)  að stunda Ponzi svindl í 25 ár, sem gekk út á það að lokka saklaust fólk til að leggja spariféð sitt inn í "plottið" hans.  Á endanum töpuðu þúsundir manna sparifénu sínu.  Dómurinn hljómaði upp á 150 ár.  Hefði það hljómað betur, að rúmlega sjötugur maðurinn fengi 15 ár kannski?

Það er með ólíkindum er að jafn sigldir og sjóaðir steinar átti sig ekki á hlutverki handjárna í handtökum í Norður Ameríku og samkvæmni í dómum þar. Fjöldamorðingjar eru gjarnan dæmdir í 12-20 lífstíðarfangelsi, af prinsippástæðum, en svo eru dauðarefsingar auðvitað kornið sem fyllir mælinn, og má vel flokkast undir "bandarískt réttarfar" samanborið við umburðarlyndan evrópskan mælikvarða. 

Handjárn og fálkaorður gegna eiginlega ákveðnum hlutverkum, þó ólík séu;  Hlutverk handjárna er að niðurlægja, auðmýkja, sýna boðvald og hvetja til uppgjafar og ........ yfirbuga ef viðkomandi hefur verið að skjóta úr hríðskotabyssu en hlutverk fálkaorðunnar er að upphefja, sýna viðurkenningu, virðingu  og hvetja til dáða.  

handjarn.jpg 

Með sömu rökum, á ekki að spara þessar fálkaorður líka, eða heimta þær til baka ef orðuhafi hefur tapað virðingunni.

Kannski þarf bara að leggja niður "þernur" til að koma í veg fyrir svona harmleiki.

falkaor_a.jpg

 

Um eitt geta ríkir og frægir sem "lenda" í kasti við bandaríska  dómskerfið verið vissir;

 Þeir eru líklegir til að vera meðhöndlaðir á sama hátt, eða (aðeins verri) og John Smith frá Mainstreet, sem áreitti óaðlaðandi þernu á hótelherbergi.  Þeir snobba líka upp á við þegar kemur að handtökum.

 

Væri maður samsæriskenningasmiður, væri þessi handtaka gráupplögð og rökrétt skref  í "allsherjarsamsærinu" um ; eina stjórn, einn gjaldmiðil, eitt ríki í heiminum.

Megi sannleikurinn koma sem fyrst í ljós!

 


Ísaksskóli dejavu - 85 ára afmælishugvekja.

Þetta er dáldið skemmtileg frétt sem ég get ríleitað tú, eins og þeir segja hér í Ameríku.

Löng (með nokkrum hléum) skólaganga undirritaðrar hófst þegar hún var 5 ára, því stóra systir og stóri bróðir fóru í skólann, sem var auk þess okkar hverfisskóli.    Ísaksskóli var dásamlegur skóli, finn ennþá lyktina, man enn þá myndina á snaganum (snjókarl) , gleðina, söngvana og spennuna þegar frú Aðalbjörg í fallegu peysufötunum sínum sagði blíðlega; "þú mátt byrja núna" um leið og hún setti skeiðklukkuna í gang og maður byrjaði  lesturinn í "lestrarprófinu". 

Börnin mín tvö, voru auðvitað send í sama skóla, þó við byggjum í Kópavogi með drenginn og Mosfellsbæ með stúlkuna.  Eða ..... þar til Mosfellsbær neitaði að "greiða" með nemendum í einkaskóla í öðru bæjarfélagi.  

Fór með málið alla leið til Umboðsmanns Alþingis Gauks Jörundssonar, sem gat ekkert gert í málinu, svo við hjónin urðum að "flytja búferlum" heim á sjálft æskuheimilið, á meðan sonurinn sá um "óðalssetrið" í Mosó.  

Ég skil þess vegna  krónprinsinn og frúna vel, að gera það sem gera þarf, til þess að koma örverpunum  í skólann sem þeim hugnast. 

Kennari okkar systkina var Matthildur Guðmundsdóttir,yndisleg kona og frábær kennari,  yngsta systir fékk annan kennara sem ég man ekki hvað heitir.  Sonur var svo heppinn að fá Herdísi Egilsdóttur sem kennara þar sem þau bjuggu til Tröllalandið fræga.  Kennari dóttlu var  Sigríður Guðmundsdóttur, sem kenndi í marga áratugi við skólann.  Skólastjórar sem ég man eftir í svipinn;  Helga Magnúsdóttir, Anton Guðmundsson og líklega einhverjir fleiri, en ég sendi Sigríði Guðjónsdóttur (Siggu Wink)  skólastjóra innilegar hamingjuóskir og þakkir fyrir að viðhalda frábæru skólastarfi, 

Með von um að enn sé farið í "vorferð" upp í Öskjuhlíð, og gengið í langri halarófu, syngjandi hástöfum í gegnum Hlíðarnar með nesti í tösku, og farið í "síðasta" í kringum vatnsgeymana þar.

Kærar kveðjur

 

 


mbl.is Fimm ára prins flytur að heiman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingja múgsins

Fólk á jörðinni  þarf að vera verulega "lágt" niðri til að gjóa ekki einu eða báðum augum að útsendingum af brúðkaupi aldarinnar.

Maður er náttúrulega eitt af þessum furðuverkum; hattafrík fædd á Íslandi, sem getur aldrei borið hatt af einhverri alvöru, því íslenskir karlar skilja ekki hatta-list.  Á konungsvegum gæti  maður labbað inn í Westminster Abbey með flauelsklætt víravirki framan á enninu, og engum þætti það  hallærislegt, þvert á móti.

Eftir að hafa horft á útgáfu Piers Morgan, sem er auðvitað "born British" en svona arftaki Larry King hér í Ameríkunni, þá stíg ég upp á "bloggstokk" og viðurkenni að ég gjörsamlega heillaðist af;

gleðinni,

gáskanum,

hamingjunni,

fegurðinni,

voninni,

framtíðinni,

höttunum,

og öllu öðru yfirnáttúrulegu sem mátti skynja ef vel var að gáð í 

fordómalausum kossum (í fleirtölu)  ungu brúðhjónanna á svölunum í Buckingham höll, og litlu augnagotunum sem flestir þekkja sem sterka vísbendingu um sanna ást!

Ég veit að það er fullt af fólki sem finnst þetta hallærislegt, teprulegt og gamaldags par se.   Kærði mig líka kollótta þar til ég settist niður og horfði á Piers, (sem er uppáhald no matter what) og heillaðist gjörsamlega af; stundinni, gleðinni, voninni og hamingjunni.

Skynja það "sterkt" að ég er af kynslóð foreldra brúðhjóna þó Kalli sé miklu eldri, en krakkarnir mínir skynja að þau eru af sömu kynslóð og Will og Kate!    Það er einhver gáski og einlægni í loftinu sem fólki eins og mér af minni kynslóð líkar, og krökkunum mínum og þeirra kynslóð finnst eðlilegt og normal.

Gæti það kannski gerst, með næstu kynslóð?

 

 

 

 willkate.jpg

 

 


mbl.is Skemmtu sér í Buckingham-höll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkt og siðlaust viðskiptaumhverfi 2.grein

Í júní 1993 skrifaði ég 1.grein sem bar þetta heiti,

þá var ég ung, reið og ráðvillt nú er ég bara reið.

Í viðskiptablaðinu í dag birtast svo hrikalegar niðurstöður um að 70% stjórnenda í íslensku viðskiptalífi telja það vera siðlaust.

Í mínum huga, verður engin hugarfarsbreyting þvinguð upp á stjórnendur fyrirtækja, hvorki á átján árum eða einni nóttu.    Það þarf að gera þetta í gegnum "veskið og virðingu" þeirra, það er það eina sem þeir skilja.

Fámennisþjóðfélagið á marga góða og hugljúfa kosti, en jafnramt er það ástæða og uppspretta þess sem við köllum spillingu og nápot.   Það þarf að setja miklu harðari reglur um opinberan rekstur, innkaup og ráðningar, sem fylgt er eftir með reglulegu eftirliti.   Ekki skal vera leyfilegt að sama stofnun skipti við sama birgja lengur en 12 mánuði í senn, án undangengis útboðs.

Aðal spillingin nú ef marka má orðróm, felst í að fyrirtæki sem lent hafa í kryppluðum faðmi bankanna, tæknilega gjaldþrota vegna rugls stjórnenda og eigenda, en rekstrarvæn eru nú með dagskipun að snúa viðskiptum sínum hvert til annars, no matter what!  Ef einhver sannleikur reynist vera í þessum orðróm, þá er auðvitað um bullandi brot á samkeppnislögum að ræða, sem gætu haft í för með sér háar fjársektir.

Ein grundvallarregla til bráðabirgða vegna efnahagshruns væri sjálfsögð; Þeir sem sátu í stjórnunarstöðum í bönkum og fyrirtækjum og Skýrsla RNA vísar í sem "frekari rannsóknarhæf" viðskipti hjá saksóknara eru óhæfir til stjórnarsetu eða sem æðsti stjórnandi í hlutafélögum þar til meintar ásakanir hafa verið rannsakaðar til fulls og mál dæmd eða vísuð frá.

Stórauka þarf sektarfjárhæðir við hvers kyns brotum í viðskiptum.  Víða erlendis eru starfræktar svokallaðar BBB  "Better business Bureo", sem tekur út alla starfsemi fyrirtækisins eftir ákveðnum stöðlum, sem ákveða hvort fyrirtækið geti fengið BBB stimpil, sem þykir traustvekjandi og trúverðugur.  Þarna er líka komið eftirlitsbatterí sem fylgist með orðrómi og kannar sannleiksgildi, tekur við kvörtunum ofl. 

Loks er fullkomnlega tímabært fyrir all löngu síðan að "fagstéttin" Endurskoðendur og Viðskiptafræðingar, álykti opinberlega um þær óvirðingar sem félagsmenn hafa orðið fyrir og halda áfram að verða fyrir á meðan t.d. Endurskoðendur neita að horfast í augu við eða svara af tómlæti; "við gerðum ekkert rangt", og félagsmenn á þeirra vegum liggja undir þungum ásökunum um brot í starfi.  

Í stuttu máli;  til þess að bæta siðferðið þarf viðskiptaumhverfið,  sem getur aldrei einkennst af öðru en mikilli fákeppni, að búa við ferkantaðar reglur, háar sektir og viðurlög við brotum.  Almenn umræða um þegar  stjórnendur fyrirtækja missa sig í græðgi og opinberri fyrirlitningu á ríkjandi viðhorfum sem leitt hafa til glötunar nú um sinn.


Beðist velvirðingar á óþægindum ....

Japanir hafa komið heiminum á óvart undanfarnar vikur, m.a. vegna æðruleysis sem fólkið sýnir í hjartans einlægni, í aðstæðum sem myndu æra aðra til blóts og grenjandi sjálfsvorkunnar.

Það er lotningarfull dulúð, sem fylgir stóískri ró Japana, og nú um daginn báðust þeir afsökunar á jarðskjálftum og afleiðingum þeirra. Fram undan eru erfiðir tímar í efnhagslífi Japans, vegna gífurlegs tjóns af völdum náttúruhamfaranna.  Japanir munu rífa sig upp úr því fyrr en varir, með nýjum uppfinningum í "disaster free energy".

Þó Íslendingar og Japanir eigi sumt sameiginlegt, eins og það að borða  mikinn fisk og státa af langlífi, þá birtist umheiminum gjörólík minnimáttarkennd gagnvart náttúruöflum, annars vegar drambsöm og hins vegar japönsk.

 


mbl.is Ekki ástæðulaus ótti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út fyrir allan þjófabálk

að kalla fjársvik og þjófnað; "persónulegan harmleik" eins og kom fram hjá talsmanni Valhallar á RUV. 

Sjálfskapandi víti; getur verið harmleikur fyrir ástvini viðkomandi, en aldrei má "réttlæta" fjársvik og þjófnað með persónulegum harmleik, þó slíkt geti verið ákveðin skýring á athæfinu.

Mér finnst það móðgun og virðingarleysi við þá sem eiga við raunverulegan harmleik að glíma.

Þjófar finnast í öllum stéttum, stærðum og gerðum.  Alveg óþarfi fyrir Valhöll að mála þetta öðrum litum.

Fjallaði um "mannlegan harmleik" í þessum pistli.


mbl.is Grunaður um fjárdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband